Fara í efni

Íbúafundur bæjarstjóra í kvöld

Í kvöld kl. 20 verður haldinn íbúafundur í Háaleitisskóla með bæjarstjóra og framkvæmdastjórum Reykjanesbæjar, en þar verður m.a. fjallað um helstu verkefni framundan á þessu ári. Í kvöld kl. 20 verður haldinn íbúafundur í Háaleitisskóla með bæjarstjóra og framkvæmdastjórum Reykjanesbæjar, en þar verður m.a. fjallað um helstu verkefni framundan á þessu ári.

Í framhaldi af inngangi bæjarstjóra verður boðið upp á umræður og fyrirspurnir með framkvæmdastjórum, skipt eftir málaflokkum. 

Fundurinn verður jafnframt sendur út beint á vef bæjarins: reykjanesbaer.is og hægt verður að senda inn ábendingar á netfangið: ibuafundir@reykjanesbaer.is

Við hvetjum íbúa Ásbrúar að fjölmenna í Háaleitisskóla í kvöld og láta sig málefni svæðisins varða.