Fara í efni

Keilir tekur þátt í Háskóladeginum 2025

Háskóladagurinn 2025 verður haldinn í Reykjavík 1. mars næstkomandi.

Í kjölfarið munu svo háskólar landsins ferðast á þrjá staði á landsbyggðinni til að kynna námsframboð og námsleiðir sínar.

Þann 10. mars verður Háskóladagurinn á Höfn, 11. mars á Egilsstöðum og svo 12. mars á Akureyri.

Allir háskólar landsins standa að Háskóladeginum en þeir eru Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli Íslands, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn í Reykjavík og Listaháskóli Íslands.

Kynningar fara fram í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands í Stakkahlíð.

Hinir Háskólarnir verða með kynningar í þessum þremur skólum nema Háskólinn á Hólum sem verður einungis á Háskólatorgi Háskóla Íslands

Háskóladagurinn er samstarfsverkefni allra háskóla á landinu og er ómissandi fyrir einstaklinga sem hyggja á háskólanám enda frábært tækifæri til að spjalla við vísindamenn, kennara og nemendur um allt sem viðkemur mögulegu námi í framtíðinni. Hvetjum ykkur til að mæta og kynna ykkur námsframboð og þjónustu háskólanna.

Vert er að geta þess að Hopp býður upp á fríar ferðir á Háskóladaginn ef fólk leggur í Hoppstæði við Grósku, HÍ, HR eða LHÍ Stakkahlíð.

Endilega kynnið ykkur hvað er í boði á https://www.haskoladagurinn.is/