Fara í efni

Margt um manninn á Ásbrú

Yfir 600 nemendur stunda nám við Keili, en auk þeirra eru yfir 100 þátttakendur á ráðstefnu Heilsuskóla Keilis um þessa helgi. Yfir 600 nemendur stunda nám við Keili, en auk þeirra eru yfir 100 þátttakendur á ráðstefnu Heilsuskóla Keilis um þessa helgi.


Meðfylgjandi mynd er tekin utan við húnsæði Keilis. Sést aðeins lítill hluti þess bílaflota sem nú er hér allt í kring. Stafar hann af fjölmennum hópi nemenda og ráðstefnugesta á vegum Keilis. Í Keili eru skráðir yfir 600 nemendur þannig að oft er fjör að deginum. Núna stendur líka yfir um 100 manna ráðstefna á vegum Heilsuskóla Keilis þar sem frægir þjálfarar frá Bandaríkjunum messa yfir íslenskum starfsbræðrum og systrum. Fer sú ráðstefna frá í Andrews og Íþróttahúsinu á Ásbrú.