Fara í efni

178 nemendur útskrifaðir frá Keili

Útskriftarhópurinn
Útskriftarhópurinn
Vorútskrift Keilis fór fram í Andrews þann 16. júní síðastliðinn að viðstöddu fjölmenni. Vikuna áður hafði Keilir útskrifað 38 nemendur norður á Akureyri en Keilir rekur þar útibú í góðu samstarfi við SÍMEY.

Vorútskrift Keilis fór fram í Andrews þann 16. júní síðastliðinn að viðstöddu fjölmenni. Vikuna áður hafði Keilir útskrifað 38 nemendur norður á Akureyri en Keilir rekur þar útibú í góðu samstarfi við SÍMEY.

Fyrir norðan útskrifuðust 20 ÍAK einkaþjálfarar, tveir ÍAK íþróttaþjálfarar og 16 af Háskólabrú. Á Andrews hlutu 140 nemendur brottfararskírteini:

Háskólabrú: 57       
ÍAK einkaþjálfari: 50
ÍAK íþróttaþjálfari: 11
Flugþjónusta: 22

Í sumar verða svo brautskráðir nemendur úr atvinnuflugi og Háskólabrú með raungreinaval. 

Keilir hefur nú starfað í fjögur ár. Á þeim tíma hafa 902 nemendur hlotið prófskírteini frá Keili þar af 504 af Háskólabrú. Svo skemmtilega vill til að í vor útskrifaðist fyrsti árgangur Háskólabrúar með prófgráðu úr háskóla. Almennt virðist hópurinn standa sig með ágætum.

Fram kom í ræðu Hjálmars Árnasonar, framkvæmdastjóra Keilis, líkti námi nemenda við fjallagöngu þar sem hópurinn væri nú kominn upp á einn tindinn en við blöstu þeir næstu. Bað hann nemendur að taka með sér búnað úr námi sínu: vilja, kjark og auðmýkt.  Þannig gætu þau glímt við næstu tinda í lífi sínu. 

Gunnhildur E. Vilbergsdóttir afhenti skírteini Heilsuskóla, Bryndís Blöndal fyrir flugþjónustu og Soffía Waag Árnadóttir fyrir Háskólabrú. Verlaun fyrir góðan námsárangur hlutu: Sigríður Arna Ólafsdóttir ÍAK einkaþjálfari, Tinna Stefánsdóttir ÍAK íþróttaþjálfari, Ásdís Sigurðardóttir ÍAK einkaþjálfari frá Akureyri; Vera Vilhjálmsdóttir á Háskólabrú og Andrea Atladóttir af Flugþjónustubraut.

Skemmtileg ávörp fyrir hönd nemenda fluttu þau Sigrún Emma Björnsdóttir, ÍAK einkaþjálfari  og Theódóra Svala Sigurðardóttir. Í upphafi og lok samkomu söng Jógvan Hansen, fyrrum nemandi Keilis, við undirleik Vignis Þór Stefánssonar.

Innritun hjá Keili hefur gengið vel fyrir næstu önn.