Í síðustu viku undirrituðu Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Berglind Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Keilis endurnýjaðan samstarfssamning um aðfaranám Háskólabrúar Keilis sem er námsleið ætluð fullorðnum námsmönnum sem ekki uppfylla inngönguskilyrði í HÍ.
Háskólabrú Keilis hefur verið í boði vel á annan áratug en markmiðið með náminu er að gefa þeim sem ekki hafa lokið stúdentsprófi færi á að hefja háskólanám. Háskóli Íslands ber faglega ábyrgð á aðfaranáminu en Keilir sér alfarið um framkvæmd kennslu í samræmi við námskrá og kröfur háskólans. Sérstak fagráð, skipað fulltrúum HÍ og Keilis, hefur umsjón með samstarfssamningum og útfærslu hans. Í samningnum er m.a. kveðið á um fjármögnun námsins og samstarf um kynningu þess.
Keilir er eini skólinn sem býður upp á aðfaranám í samstarfi við Háskóla Íslands og er námið skipulagt þannig að nemandi í fullu námi skulu að jafnaði ljúka því á tveimur önnum. Hægt er að stunda námið í fjarnámi eða staðnámi í fullu námi eða á lengri tíma og þá samhliða vinnu. Inntökuskilyrði í aðfaranám Keilis eru þau að umsækjendur séu orðnir 20 ára og hafi lokið ákveðnum fjölda eininga í framhaldsskóla eða skilgreindu starfsnámi. Námið gildir til inntöku í allar deildir Háskóla Íslands að uppfylltum kröfum deildanna.
Töluverður fjöldi nemenda eða tæplega 2600 talsins hefur lokið námi hjá Háskólabrú Keilis og um 80% þeirra hafið nám í Háskóla Íslands. Þá hafa nokkrir nemendur Háskólabrúar hlotið styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands sem er þeim mikill heiður.
Nám í fjarnámi á Háskólabrú hefst næst þann 10.janúar 2025.