Fara í efni

Ásbrúardagurinn

Ásbrúardagurinn verður 29. maí næstkomandi
Ásbrúardagurinn verður 29. maí næstkomandi

Ásbrúardagurinn er orðinn árviss hátíð í upphafi sumars. Til þessa hefur dagurinn verið haldinn hátíðlegur á sumardaginn fyrsta og þá hafa þúsundir Suðurnesjamanna og gesta af höfuðborgarsvæðinu safnast saman á Ásbrú í karnivalstemmningu. Ásbrúardagurinn verður aftur haldinn hátíðlegur í ár en nú hefur dagsetningin verið færð til. Að þessu sinni verður hann haldinn hátíðlegur í lok maí, fimmtudaginn 29. maí. Áhersla er lögð á skemmtilega upplifun fyrir gesti og að fjölbreytt dagskrá verði í boði.

Við þetta tilefni opnar Keilir dyrnar og verður með skemmtilegar og stuttar kynningar á námsframboði skólans. Villi vísindamaður kemur á svæðið, tónlistarkonurnar Jónína Aradóttir og Adda Ingólfsdóttir spila fyrir gesti, Bryn ballett Akademían verður með danssýningu, Flugakademía Keilis verður með flughermi þar sem gestir geta prófað að lenda flugvél, tækni- og vísindasmiðja fyrir börn og unglinga, kynningar og tilraunir í efnafræði- og mekatróníkstofum tæknifræðináms Keilis, vélmenni teiknar myndir og margt fleira. Blöðrur og skúffukaka í boði svo lengi sem birgðir endast.

Notaðu tækifærið og slakaðu á í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú, hlustaðu á þægilega tónlist, gæddu þér á skúffuköku og kynntu þér fjölbreytt námsframboð skólans kl. 13 - 16.


Aðalhátíðarsvæðið verður í Atlantic Studios, sem er kvikmyndaverið á Ásbrú. Þar verður skemmtidagskrá og leiktæki, auk þess sem myndað verður markaðstorg með sölubásum. Þeir sölubásar eru þó eingöngu á vegum íþrótta- og góðgerðafélaga á Suðurnesjum til fjáröflunar. Í kvikmyndaverinu verður einnig vettvangur fyrir fyrirtæki á Ásbrú að kynna starfsemi sína. Þá mun samfélagið á Ásbrú láta vita af því hvað þar er um að vera, enda margt skemmtilegt að gerast á Ásbrú. Þá verður frumkvöðlasetrið Eldey opið og fjölbreytt starfsemi í húsinu kynnt fyrir fólki.

Eins og á síðasta ári verður Ásbrúardagurinn í ár í góðu samstarfi við bandaríska sendiráðið sem kemur með ósvikna ameríska stemmningu í húsið. Þannig verða keppnir um besta Chili-réttinn hjá veitingastöðum og einnig einstaklingskeppni um amerískar bökur.

Nánari upplýsingar og dagskrá