14.06.2017
Föstudaginn 23. júní verður brautskráning nemenda í tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis. Útskriftin fer fram kl. 15:00 í sal aðalbyggingar Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Útskriftarnemendur eru beðnir að mæta kl. 14:15 stundvíslega, vegna myndatöku og æfingar. Áætlað er að athöfnin taki um klukkustund. Vinsamlegast skráið ykkur í útskrift á netfangið utskrift@keilir.net og tilgreinið gestafjölda.