Fara í efni

Brautskráning tæknifræðinemenda Háskóla Íslands og Keilis

Föstudaginn 24. júní fór fram brautskráning kandídata í tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis, en námið heyrir undir Rafmagns- og tölvuverkfræðideild HÍ.

Þetta er í fimmta skipti sem útskrifaðir eru nemendur í tæknifræði frá Keili til BSc-gráðu frá Háskóla Íslands. Brautskráðust í allt ellefu nemendur, sjö úr mekatróník hátæknifræði og fjórir úr orku- og umhverfistæknifræði. Brautskráningin fór fram við hátíðlega athöfn í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú og hafa nú í allt 63 nemendur útskrifast úr náminu frá upphafi.

Sverrir Guðmundsson forstöðumaður tæknifræðinámsins flutti ávarp og afhenti prófskírteini ásamt Helga Þorbergssyni, dósent við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands. Jóhannes Benediktsson formaður tæknifræðingafélagsins flutti ávarp og veitti gjafir fyrir vel unnin og áhugaverð verkefni. Viðurkenningar hlutu Helgi Valur Gunnarsson fyrir verkefnið „Pökkunarbúnaður fyrir bláskel“ og Jón Þór Guðbjörnsson fyrir verkefnið „Miðlægur orkustýribúnaður með gagnaflutning um raflagnir“. Þá hlaut Skarphéðinn Þór Gunnarsson viðurkenningu fyrir góðan námsárangur, með 8,3 í meðaleinkunn. 
 
Ellert Arason flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og Hjálmar Árnason framkvæmdastjóri Keilis flutti ræðu og stjórnaði athöfninni. Gjafir veittu Tæknifræðingafélag Íslands og HS-Orka.
 
Næst verður tekið við nemendum í tæknifræðinám Háskóla Íslands og Keilis í janúar 2017. Um er að ræða hagnýtt nám sem hentar sérstaklega vel fyrir frumkvöðla og þá sem hafa áhuga á verklegri nálgun í námi og starfi. Nánari upplýsingar um námið má nálgast á www.kit.is.