Fara í efni

Brautskráning tæknifræðinemenda Háskóla Íslands og Keilis

Frá brautskráningu tæknifræðinga Háskóla Íslands og Keilis 23. júní 2017
Frá brautskráningu tæknifræðinga Háskóla Íslands og Keilis 23. júní 2017

Föstudaginn 23. júní fór fram brautskráning kandídata í tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis, en námið heyrir undir Rafmagns- og tölvuverkfræðideild HÍ. Þetta er í sjötta skipti sem útskrifaðir eru nemendur í tæknifræði frá Keili til BSc-gráðu frá Háskóla Íslands. Brautskráðust í allt níu nemendur, úr mekatróník hátæknifræði og úr orku- og umhverfistæknifræði. Brautskráningin fór fram við hátíðlega athöfn í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú og hafa nú í allt 72 nemendur útskrifast úr náminu frá upphafi.

Sverrir Guðmundsson deildarstjóri tæknifræðideildar flutti ávarp og afhenti prófskírteini ásamt Helga Þorbergssyni, dósents við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands. Arnlaugur Guðmundsson fulltrúi í menntamálanefnd Verkfræðingafélags Íslands flutti ávarp og veitti gjafir fyrir vel unnin og áhugaverð verkefni. 

Ólafur Jóhannsson viðurkenningu fyrir lokaverkefni sitt í orku- og umhverfisfræði, sem var hagkvæmnismat á uppsetningu umhverfisvænna orkugjafa fyrir rekstur gistihúsa. Þá fékk Þórir Sævar Kristinsson fékk viðurkenningu fyrir lokaverkefni sitt í mektaróník hátæknifræði. Í verkefninu var hönnuð og unnin hagkvæm lausn að jaðartæki við Flutningsvaka sem er sjálfvirkur búnaður sem skrásetur hverskonar meðhöndlun sem varningur í flutningi verður fyrir, ásamt því að skrá hitastig, þrýsting og rakastig. Þórir hlaut einnig viðurkenningu fyrir góðan námsárangur, með 9,01 í meðaleinkunn. 

Ólöf Ögn Ólafsdóttir flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Gjafir veittu Verkfræðingafélag Íslands Íslands og HS-Orka.

Hjálmar Árnason framkvæmdastjóri Keilis stjórnaði athöfninni og flutti ræðu þar sem hann ræddi meðal annars um þau störf sem biðu nýrra tæknifræðinga, störf sem jafnvel væru ekki til í dag. 

Tæknifræðinám Háskóla Íslands og Keilis hefst næst í ágúst, en um er að ræða hagnýtt nám sem hentar sérstaklega vel fyrir frumkvöðla og þá sem hafa áhuga á verklegri nálgun í námi og starfi. 

Myndir frá útskriftinni