Fara í efni

Námskeið fyrir atvinnubílstjóra: Lög og reglur

Boðið verður upp á endurmenntunarnámskeiðið „Lög og reglur" fyrir atvinnubílstjóra í mars. Markmiðið er að bílstjórinn þekki helstu atriði í lögum og reglum um vöru- og farþegaflutninga og um stór ökutæki sem atvinnutæki og geri sér grein fyrir ábyrgð bílstjóra á ástandi og notkun ökutækis á hverjum tíma.

Námskeiðin hjá Keili byggja á virkri þátttöku nemenda og á vönduðum upptökum á kennsluefninu. Námskeið er háð lágmarks þátttöku.

  • Tímasetning: Laugardaginn 10. mars kl. 9:00 - 16:00
  • Verð: Námskeiðið kostar kr. 19.900
  • Staðsetning: Aðalbygging Keilis að Grænásbraut 910 í Reykjanesbæ
Samkvæmt nýrri reglugerð verða atvinnubílstjórar (ökuréttindi í flokkum C1, C, D1 og D) að sækja endurmenntun á fimm ára fresti. Keilir hefur fengið viðurkenningu Samgöngustofu til að bjóða upp á endurmenntun bílstjóra til farþegaflutninga og vöruflutninga í atvinnuskyni og býður upp á kjarnanámskeið frá og með haustinu 2016.
 
Nánari upplýsingar veitir Margrét Hanna verkefnastjóri hjá Keili. Upplýsingar í síma 578 4079 og 578 4091.