Fara í efni

Flugakademían býður í bíó á fimmtudaginn

Van Nuys
Van Nuys
Fimmtudaginn 25. nóvember býður Flugakademía Keilis uppá bíósýningu í Andrews leikhúsinu klukkan 17.30. Sýnd verður myndin One six right sem fjallar um flugvöll í USA sem átti að leggja af vegna þess hve byggð hafði lagst þétt að honum. Ekki var allt sem sýndist og er farið í skemmtilegt ferðalag um völlinn og sögu hans.

Fimmtudaginn 25. nóvember býður Flugakademía Keilis uppá bíósýningu í Andrews leikhúsinu klukkan 17.30. Sýnd verður myndin One six right sem fjallar um flugvöll í USA sem átti að leggja af vegna þess hve byggð hafði lagst þétt að honum. Ekki var allt sem sýndist og er farið í skemmtilegt ferðalag um völlinn og sögu hans.

Van Næs eða Van Nuys er Ásbrú þeirra í Kaliforníu og eins og á Keflavíkurflugvelli þá var herstöðin þar lögð af í lok kalda stríðsins. Gerð hefur verið fræðslumynd um flugvöllinni í Kaliforníu og verður hún sýnd í Andrews leikhúsinu á Ásbrú nk. fimmtudag kl. 17:30 og eru allir velkomnir.

Fræðslumyndin “One Six Right” fjallar um Van Nuys (Van Næs) flugvöll í Kaliforníu sem á ýmislegt sameiginlegt með Keflavíkurflugvelli. Herinn hætti að nota völlinn í lok kalda stríðsins og eftir það byggðist hann upp sem miðstöð almannaflugs (General Aviation) og áætlunarflugs miðlungsstórra flugvéla. Van Nuys hefur fengið að vaxa og dafna samkvæmt framboði og eftirspurn á hverjum

tíma og í dag eru 10.000 störf á og við völlinn.

Nágrannar vallarins hafa skilning á mikilvægi hans fyrir svæðið og myndin sýnir hvað hægt er að gera þegar ríkjandi jákvæð viðhorf sameinast í uppbyggingu vallarins með fjölgun flugrekstraraðila, viðhaldsfyrirtækja, sérþekkingar og frumkvöðlastarfsemi.

Þar sem Keflavíkurflugvöllur er að sumu leyti í sömu sporum og Van Nuys var áður er við hæfi að íhuga: Hvert stefnir Keflavíkurflugvöllur? Myndin er áberandi fallega tekin og fjöldinn allur af flugvélum sýndur við fjölbreytt verkefni. Aðgangur er ókeypis og eru flugnemar, flugkennarar, flugvirkjar, flugumferðarstjórar, embættismenn og áhugasamir íbúar á Reykjanessvæðinu hvattir til að mæta. Popp og Gos á vægu verði.

Verið velkomin!

Námsframboð Flugakademíu Keilis