Fara í efni

Frábær árangur í Háaleitisskóla

Nemendur í  2. bekk Háaleitisskóla á Ásbrú fengu hæstu einkunn á Læsis-prófi sem nýverið fór fram í skólum á Suðurnesjum. Nemendur í  2. bekk Háaleitisskóla á Ásbrú fengu hæstu einkunn á Læsis-prófi sem nýverið fór fram í skólum á Suðurnesjum.

Um er að ræða samræmt könnunarpróf sem ætlað er að varpa ljósi á stöðu nemenda í lestri. Þess má einnig geta að síðastliðið haust skilaði Háaleitisskóli mjög góðum niðurstöðum á samræmdum prófum í 4. og 7. bekk. Allir kennarar skólans eru háskólamenntaðir en eins og greint var frá fyrir skemmstu hefur réttindakennurum við grunnskóla Reykjanesbæjar fjölgað úr 70% í 95% á síðustu sex árum.