Fara í efni

Fræðsluerindi um offitu

Í tilefni af heilsu- og forvarnarviku Reykjanesbæjar bjóða Heilsuskóli Keilis og Kadeco upp á fræðsluerindi í vikunni um offitu barna 4. okt. og offitu fullorðinna 5. okt.

Í tilefni af heilsu- og forvarnarviku Reykjanesbæjar bjóða Heilsuskóli Keilis og Kadeco upp á fræðsluerindi í vikunni um offitu barna 4. okt. og offitu fullorðinna 5. okt.

Þriðjudaginn 4. október klukkan 20.00 verður Þrúður Gunnarsdóttir sálfræðingur og dr. í lýðheilsuvísindum með erindi í Keili um offitu barna, forvarnir og úrræði. Þrúður skrifaði doktorsritgerð sína um fjölskyldumiðaða atferlismeðferð fyrir of feit börn og starfar í dag við slíkar meðferðir. Þrúður mun veita foreldrum góð ráð um hvernig þau geti stuðlað að heilbrigðu líferni barna sinna.

Miðvikudaginn 5. október klukkan 20.00 verður Guðlaugur Birgisson, sjúkraþjálfari á offitusviði Reykjalundar með erindi í Keili. Guðlaugur mun segja frá þeirri nálgun sem notast er við hjá Reykjalundi við meðferð offeitra, með áherslu á hreyfiþáttinn. Einnig verður Guðlaugur með ýmis heilræði fyrir þá sem vilja léttast. Með Guðlaugi verður Harpa Eiríksdóttir, suðurnesjamær, sem hefur verið undir handleiðslu offituteymis Reykjalundar og létt sig um tugi kílóa. Harpa mun segja frá sinni reynslu og veita góð ráð.

Keilir og Kadeco bjóða uppá fræðsluerindin. Allir velkomnir.