Fara í efni

Frumkvöðullinn Fida er ?Maður ársins á Suðurnesjum 2014?

Fida er maður ársins á Suðurnesjum
Fida er maður ársins á Suðurnesjum

Frumkvöðullinn Fida Abu Libdeh, einn stofnenda Geosilica Iceland og fyrrum nemandi í Keili er ?Maður ársins á Suðurnesjum 2014?.

Fida kom 16 ára frá Palestínu, gekk í menntaskóla í Reykjavík en náði ekki að ljúka stúdentsprófi vegna erfiðleika með íslenskuna. Hún vildi mennta sig meira og gera meira á lífsleiðinni en var komin í öngstræti þegar hún uppgötvaði Háskólabrú í Keili á Ásbrú. Þar var hún greind með lesblindu og fékk viðeigandi hjálp til að halda áfram að læra. Það gerði hún með stæl, lauk stúdentsprófi og síðan í framhaldinu þriggja ára háskólanámi í orku- og umhverfistæknifræði á vegum Háskóla Íslands og Keilis.

Hún stofnaði síðan frumkvöðlafyrirtæki með skólafélaga sínum Burkna Pálssyni og nú um áramótin kom vara þeirra á markaðinn en það er hágæða kísilfæðubótarefni, unnið úr náttúrulegum íslenskum jarðhitakísli. Hún lét ekki þar við sitja á menntunarbrautinni heldur fór samhliða vinnu sinni í nýja fyrirtækinu í MBA nám í Háskólanum í Reykjavík sem hún klárar næsta vor. Það var ekki alveg nóg því hún bætti við þriðja barninu en hún er gift Jóni Kristni Ingasyni viðskiptafræðingi. Fjölskyldan býr á Ásbrú og var með fyrstu íbúunum sem flutti þangað árið 2007.

Frétt Víkurfrétta