Fara í efni

Fyrstu tæknifræðingarnir

Fyrsti hópur tæknifræðinga Keilis og Háskóla Íslands útskrifaðist laugardaginn 23. júní síðastliðinn, þegar 15 nemendur brautskráðust með BS gráðu í orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník hátæknifræði.

Gestum gafst kostur á að kynna sér lokaverkefni nemenda í anddyri Andrews Theater á Ásbrú fyrir athöfnina.

Önundur Jónasson, formaður Tæknifræðingafélags Íslands, veitti Burkna Pálssyni viðurkenningu fyrir lokaverkni sitt "Hreinsun á felldum kísli með rafdrætti" og Kristni Esmar Kristmundssyni fyrir lokaverkefnið "Maður fyrir borð". Auk þess veitti Tæknifræðingafélag Íslands, Björg Árnadóttur viðurkenningu fyrir vinnu sína við rannsóknir á nýtingu hratvarma við upphitun jarðvegs.

Róbert Unnþórsson hlaut viðurkenningu frá Keili fyrir námsárangur, en hann hlaut 9,04 í meðaleinkunn. Við útskriftina söng Sveinn Enok Jóhannsson við undirleik Einars Egilssonar.

Myndir frá útskriftarathöfninni