Fara í efni

GeoSilica nýtir nemendur Keilis

Tæknifræðinemendur Keilis við Hellisheiðarvirkjun
Tæknifræðinemendur Keilis við Hellisheiðarvirkjun

Í sumar hefur hópur tæknifræðinemenda Keilis unnið að verkefnum fyrir sprotafyrirtækið GeoSilica, en það var stofnað af tveimur útskrifuðum tæknifræðingum Keilis haustið 2012.

Bakgrunnur verkefnisins

Til að framleiða kísilfæðubótarefni úr jarðhitavökva með nægilega miklu magni af kísli í hverjum lítra þarf að auka styrk kísils í vökvanum. Til að gera það þarf að sjóða vökvann niður allt að 30 falt þannig að 30.000 lítrar af vökva með 0.8g af kísli í hverjum lítra verða að 1.000 lítrum af vökva með 24g kísils í hverjum lítra.

Verkefnið miðast við að búa til búnað til að sjóða kísilvökvann niður sem er eins sjálfvirkur og hægt er til þess að ekki þurfi að fylgjast með honum. Í Hellisheiðarvirkjun fær fyrirtækið affallsvatn við 40°C og við 120°C en enga gufu. Því verður að nota 120°C heita vatnið í varmaskipti til að sjóða niður kaldari vökvann. Til þess að flýta fyrir suðu og nýta varmann betur verður suðutankurinn lofttæmdur að einhverju leyti til að lækka suðumark vatnsins verulega.

Til að koma í veg fyrir kísilútfellingar er mikilvægt að hitunarelement eða varmaskiptir komi aldrei úr kafi í suðutanki því þá snöggþornar kísilríkur vökvinn og skilur eftir sig hvítt lag af kísli sem svo flagnar af og molnar niður í mun grófari kísilkorn en eru í vatninu. Þegar réttum styrk kísils er náð verður að vera til staðar búnaður til að skynja það og tæma suðutankinn í flutningstank sem við notum til að flytja styrktan vökvann á Ásbrú þar sem GeoSilica er staðsett.

Verkefni tæknifræðinema Keilis hjá GeoSilica

?Við höfum lengi hugsað okkur að hægt væri að búa til góð nemendaverkefni úr þeim tæknilegu vandmálum sem við þyrftum að leysa í GeoSilica? segir Burkni Pálsson, annar stofnanda GeoSilica. ?Okkur fannst það einnig góð hugmynd að hafa virkt samstarf við Keili og gefa nemendum í tæknifræði svona dæmigerð viðfangsefni tæknifræðinga til að spreyta sig á og búið til spennandi verkefni úr þeim tæknilegu úrlausnarefnum sem við þyrftum að leysa fyrir framleiðslu.?

Nemendur úr tæknifræðinámi Keilis voru fengnir til að hanna og smíða suðutank (800 ? 1.000 lítra sem uppfyllir alla staðla og reglugerðir í matvælaframleiðslu) sem er lofttæmdur til að lækka suðumark vökvans og hefur sjálfvirka hæðarstýringu á yfirborði vökva til að koma í veg fyrir kísilútfellingar. Einnig þurfti að hanna varmaskipti sem nýtir varmann sem allra best og bæði þolir tæringu vel ásamt því að lágmarka hugsanlegar kísilútfellingar, auk þess að koma fyrir búnaði sem skynjar hvenær réttum styrk efna í vatninu er náð og tæmir tankinn í flutningstank. Búnaðurinn þarf að vera eins sterkur og öruggur m.t.t. bilana og hægt er ásamt því að vera á samatíma hagkvæmur.

Búnaðinum verður komið fyrir í 20 feta gám sem GeoSilica útvegar og verður staðsettur á tilraunasvæði Hellisheiðarvirkjunar. Huga þarf að loftræstingu í gámnum og koma þarf fyrir rafmagni og lögnum í honum sem er partur af verkefninu. Verkefnið tekur á efnisfræði (val á efnum, tæring o.s.frv.), varmafræði (hönnun varmaskiptis) og stýringum og skynjurum (mekatróník). Verkefnið hentar því blönduðum hópi af báðum brautum tæknifræðinámsins og er dæmigert verkefni sem tæknifræðingar fást við. 

Samkvæmt Burkna hefur verkefnið gengið vonum framar. ?Það hefur verið alveg frábært að sjá hversu úrræðagóður hópurinn er og hvernig hugmyndirnar flæða fram og eru svo stöðugt endurbættar. Við erum bara virkilega ánægð með þennan sjö manna hóp en allir í hópnum eru nemar á fyrsta ári sem hafa iðnmenntun eða slíka kunnáttu sem bakgrunn. Það hversu breiður bakgrunnur nemenda í ýmsum iðngreinum er, er mikill kostur sem ber að nýta og tengja inn í námið?.