Gunnar Páll Halldórsson kynnir lokaverkefni sitt í tæknifræði sem nefnist Energy harvesting with prosthetic feet, fimmtudaginn 26. maí kl. 10:40 í aðalbyggingu Keilis.
Gunnar Páll Halldórsson er fæddur í Reykjavík árið 1990. Hann útskrifaðist af eðlisfræðibraut úr Verzlunarskóla Íslands árið 2010. Árið 2013 hóf hann að stunda nám í mekatrónískri tæknifræði við tæknifræðideild Keilis þaðan sem hann mun útskrifast nú í sumar. Eftir útskrift þá liggur leið hans til orkufyrirtækisins Carbon Recycling International þar sem hann mun stunda starfsnám nú í sumar.
Varnir lokaverkefna
Varnir lokaverkefna BS nemenda í tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis fara fram 25. - 27. maí næstkomandi. Varnirnar fara fram í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ og eru öllum opnar (nema annað sé tekið fram).
Miðvikudagur 25. maí
- kl. 10:40: Jón Bjarki Stefánssonpage - Samanburður á Vindtúrbínum
- kl. 14:30: Jón Ingi Björnsson - Frumgerð utanáliggjandi úthljóðsflæðiskynjara
Fimmtudagur 26. maí
- kl. 09:15: Adam Crompton - Fesability of EGS in Iceland
- kl. 10:40: Gunnar Páll Halldórsson - Energy harvesting with prosthetic feet
- kl. 13:00: Skarphéðinn Þór Gunnarsson - Laser Rásaplötuvél
- kl. 14:30: Jón Þór Guðbjörnsson - Miðlægur orkustýribúnaður með gagnaflutningi um raflagnir
Föstudagur 27. maí
- kl. 09:15: Atli Már Jónsson - Nýting fiskibeina
- kl. 10:40: Ellert Þór Arason - Snertilaus greiðslustöð fyrir sjáfsala
- kl. 13:00: Heimir Sigurgeirsson - Package Drop
- kl. 14:30: Helgi Valur Gunnarsson - Skelfisk pökkunarvél
- kl. 16:00: Sara Lind Einarsdóttir - Endurnýting á Afgangsvarma