Fara í efni

Hádegisfyrirlestur um nýtingu vindorku

Landsvirkjun reisti nýverið vindmyllur við Búrfell
Landsvirkjun reisti nýverið vindmyllur við Búrfell
Margrét Arnardóttir, verkefnastjóri hjá Landsvirkjun, verður með opinn hádegisfyrlrlestur í Keili 4. apríl næstkomandi um uppbyggingu vindorkuverkefna.

Tæknifræðinám Keilis býður upp á opinn hádegisfyrirlestur fimmtudaginn 4. apríl næstkomandi. Þar mun Margrét Arnardóttir, verkefnastjóri vindorku hjá Landsvirkjun, flytja erindi sem nefnist: Framsækni - Mun rokið okkar loksins gera gagn?

Norðan við Búrfell er hraunslétta sem kölluð er Hafið. Þrátt fyrir nafnið er Hafið sjötíu kílómetra frá sjó, en þar hefur Landsvirkjun reist tvær vindmyllur í rannsóknarskyni. Vindmyllurnar eru þær langstærstu sem reistar hafa verið á Íslandi og þetta er í fyrsta sinn sem hagkvæmni raforkuframleiðslu með vindorku er könnuð á Íslandi.
 
Hafið hentar vel til verkefnisins af ýmsum ástæðum. Náttúruleg vindgöng liggja um svæðið og þar er vindhraði í 55 metra hæð frá jörðu að jafnaði 10-12 metrar á sekúndu. Svæðið er fjarri byggð en skammt frá nauðsynlegum innviðum, línum og vegum. Á Hafinu er lítið fuglalíf en nóg pláss fyrir fleiri vindmyllur ef verkefnið mælist vel fyrir. Vindmyllurnar eru hvor um sig 900 kW og samanlögð raforkuframleiðsla þeirra er áæetluð um 5,4 GWst á ári. Það myndi nægja til að sjá um 1.200 heimilum fyrir rafmagni til daglegra nota.
 

Margrét er með MsC gráðu í vélaverkfræði frá Álaborgarháskóla í Danmörku (2002) og MBA gráðu frá Háskóla Íslands (2009). Eftir útskrift ytra sinnti Margrét kennslu og rannsóknum hjá Álaborgarháskóla í eitt ár áður en hún flutti heim og hóf störf hjá ISAL (Rio Tinto Alcan) frá árinu 2003. Þar stýrði hún  m.a. rekstri kersmiðju álversins en síðustu ár hafði hún umsjón með endurhönnun á búnaði vegna fyrirhugaðrar framleiðsluaukningar í kerskálum álversins. Margrét hóf störf hjá Landsvirkjun á Virkjanadeild Þróunarsviðs um mitt  síðasta ár sem verkefnastjóri vindorku  en í því fellst stýring á uppbyggingu vindorkuverkefna hjá Landsvirkjun.

Nánari upplýsingar um vindmylluverkefni Landsvirkjunar má finna á heimasíðu þeirra.

Fyrirlesturinn er öllum opinn og fer fram 4. apríl kl 12 - 13 í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú.