Fara í efni

Hagkvæmt að sækja tæknifræðinám hjá Keili

Háskólanám í tæknifræði hjá Keili tekur einungis þrjú ár sem þýðir að nemendur komast fyrr út á atvinnumarkaðinn en í öðru sambærilegu námi. Þar að auki er beinn kostnaður við tæknifræðinámið mun minni en í öðrum skólum og þú gætir því sparað þér umtalsverðar fjárhæðir með að læra tæknifræði hjá Keili.

Háskólanám í tæknifræði hjá Keili tekur einungis þrjú ár sem þýðir að nemendur komast fyrr út á atvinnumarkaðinn en í öðru sambærilegu námi. Þar að auki er beinn kostnaður við tæknifræðinámið mun minni en í öðrum skólum og þú gætir því sparað þér umtalsverðar fjárhæðir með að læra tæknifræði hjá Keili.

Hvað kostar háskólanám í tæknifræði á Íslandi? Við skulum reikna dæmið miðað við núverandi forsendur (miðað við skráningar- og skólagjöld 2011-2012 í íslenskum háskólum).


  Tæknifræði hjá Keili Annað tæknifræðinám á Íslandi að lágmarki
Gráða   BSc BSc
ECTS   224 einingar * 210 einingar *
Gjöld   Skráningargjöld: 60.000 (pr. ár) ** Skólagjöld: 131.000 kr. (pr. önn)
Lengd   3 ár 3,5 ár
Heildarkostnaður   180.000 kr. 917.000 kr
* Lágmark Tæknifræðingafélags Íslands til að kalla sig tæknifræðing er 214 ECTS einingar [Heimasíða TFÍ].
** Skráningargjöld í Háskóla Íslands (og í tæknifræðinám Keilis) hækkuðu í kr. 60.000 1. janúar 2012. Gjaldskrá í öðrum háskólum á Íslandi fyrir haustönn 2012 hefur ekki verið birt ennþá.
 

Það getur sparað sig búa á Ásbrú
 
Það er mun ódýrara að búa á Ásbrú en að leigja á opnum markaði á höfuðborgarsvæðinu. Á Ásbrú eru rúmgóðar og vel búnar námsmannaíbúðir sem ætlaðar eru einstaklingum, pörum eða fjölskyldufólki. Stutt er í alla helstu þjónustu sem og leik- og grunnskóla á svæðinu. 
 
  Kostnaður á mánuði
  Ásbrú  Höfuðborgarsvæðið * 
2 herbergja íbúð   39.773 kr. 91.813 kr.
3 herbergja íbúð   60.617 kr. 118.458 kr.
Nettenging   Innifalið 5.250 kr. **
Samgöngur   Innifalið/Frítt *** 2.500 kr. [Miðað við einnar annar kort námsmanna í Strætó]
* Meðal leiguverð á húsnæði í Reykjavík [Verðkönnun Neytendasamtakanna í febrúar 2011]
** Vinsælasta nettengingin hjá Vodafone [Heimasíða Vodafone]
*** Það tekur ekki nema 40 mínútur að taka rútuna milli Ásbrúar og BSÍ. Rútan fer sjö sinnum á dag og stoppar meðal annars í Hafnarfirði, við Kringluna, BSÍ og Háskóla Íslands. Almenningssamgöngur innan Ásbrúar/Reykjanesbæjar eru fríar.
 

Reiknaðu dæmið til enda 
 
Segjum sem svo að þú hafir valið að hefja háskólanám í tæknifræði og að þú hafir ákveðið að búa á Ásbrú á meðan á náminu stendur. Þú klárar námið á þremur árum, notast við almenningssamgöngur og leigir þriggja herbergja íbúð. Miðað við þessar forsendur og núverandi verðlag er kostnaðurinn við námið og leiguíbúðina rúmlega helmingi minni á Keili/Ásbrú en á höfuðborgarsvæðinu. 
 
  Nám og íbúð á Ásbrú Nám og íbúð á höfuðborgarsvæðinu
Heildarkostnaður:   ca. 2.500.000 kr.  ca. 6.000.000 kr.
Kostnaður á mánuði:   ca. 70.000 kr. ca. 145.000 kr.
Hafðu samband við okkur á kit@keilir.net eða í síma 578 4000 ef þú vilt nánari upplýsingar um háskólanám í tæknifræði hjá Keili.