16.01.2014
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, KADECO, býður til hádegisfyrirlestrar í Offiseraklúbbnum á Ásbrú nk. þriðjudag. Runólfur Ágústsson ráðgjafi mun fjalla um möguleika háhraðalestar á milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur á hádegisfyrirlestri í boði Kadeco, þriðjudaginn 21. janúar kl. 12:00 ? 12:45 í Offiseraklúbbnum, Grænásbraut 619.
Á fyrirlestrinum verður velt upp spurningum eins og:
- Er hraðlest á milli Keflavíkur og Reykjavíkur aðeins spurning um tíma?
- Hverju myndi hún breyta fyrir samfélagið á Suðvesturlandi?
- Hvaða þýðingu hefði hún fyrir þróun innanlandsflugs á Íslandi?
- Hvað kostar framkvæmdin og hvernig yrði hún fjármögnuð?
- Hverjir væru tilbúnir að leggja fjármagn í verkið?
- Gæti það borgað sig upp á nokkrum árum?
Fundurinn um Keflavíkurhraðlestina er hluti af þriðjudagsfyrirlestraröð Kadeco, Geopark, Heklunnar, Keilis og Markaðsstofu Reykjaness.