Fara í efni

Háskóladagurinn

Keilir kynnir námsframboð í Háskóla Íslands á Háskóladeginum 9. mars næstkomandi.

Líkt og undanfarin ár mun Keilir kynna námsframboð sitt á Háskóladeginum 9. mars næstkomandi. Kynningarbásar Keilis verða bæði í Öskju (náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands) og á Háskólatorginu. Auk þess verður Keilir með kynningar á Háskóladeginum á landsbyggðinni:

Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi, 12. mars
Menntaskólanum á Ísafirði, 14. mars
Menntaskólanum á Egilsstöðum, 19. mars
Verkmenntaskólanum á Akureyri, 20. mars

Nánari upplýsingar um daginn er að finna hér.