09.10.2013
Framkvæmdastjóri Fulbrightstofnunar Belinda Theriault heimsótti Keili föstudaginn 4. október síðastliðinn og kynnti möguleika til framhaldsnáms og styrkja í Bandaríkjunum. Mikill áhugi var á styrkjamöguleikum Fulbright og var kynningin vel sótt af bæði nemendum og starfsfólki Keilis.