Fara í efni

Hringtorgið kemur í sumar

Hér má sjá hvernig hringtorgið verður
Hér má sjá hvernig hringtorgið verður
Framkvæmdir við gerð hringtorgs við gatnamót Reykjanesbrautar og Grænásbrekku verða boðnar út á næstu vikum og lokið í sumar.

Framkvæmdir við gerð hringtorgs við gatnamót Reykjanesbrautar og Grænásbrekku verða boðnar út á næstu vikum og lokið í sumar.

Gatnamótin Reykjanesbraut/Grænásbrekka eru líklega með þeim varasömustu hér á landi. Nú er séð fram á ánægjulegar breytingar. Framkvæmdir við gerð hringtorgs verða boðnar út á næstu vikum og lokið í sumar. Undirgöng koma svo næsta sumar.

Þetta eru ánægjuleg tíðindi fyrir okkur öll og sjáum við loksins fram á öruggari gatnamót á þessum fjölfarna stað. Þess má geta að í Reykjanesbæ hefur slysum fækkað umtalsvert í kjölfar gerð hringtorga á gatnamótum. Um leið og við gleðjumst skulum við hafa öryggið í huga – sýnum varkárni.