25.02.2014
Keilir kynnir nám á háskólastigi á Háskóladeginum 1. mars næstkomandi.
Keilir kynnir háskólanám í tæknifræði og leiðsögunám í ævintýraferðamennsku á Háskóladeginum 1. mars næstkomandi. Kynningarbás tæknifræðináms Keilis og Háskóla Íslands verður staðsettur í Öskju ásamt öðru námsframboði Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ. Hægt verður að nálgast upplýsingar um leiðsögunám í ævintýraferðamennsku og Háskólabrú Keilis á Háskólatorgi.
Komdu og kynntu þér fjölbreytt námsframboð í framsæknu skólaumhverfi hjá Keili.
Nánari upplýsingar um Háskóladaginn má nálgast á heimasíðu Háskóla Íslands.