Fara í efni

Keilir hlýtur styrk til þróunar á vendinámi

Keilir hlaut á dögunum rúmlega þrjátíu milljóna króna styrk úr Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins til þróunar á handbókum um innleiðingu vendináms (flipped classroom). Verkefnið er til tveggja ára og nefnist FLIP - Flipped Learning in Praxis. 

Markmið verkefnisins er að þróa verklagsviðmið um innleiðingu vendináms í skólum þar sem upplýsingatækni er notuð til að auðga námsumhverfi nemenda. Áhersla verður lögð á vendinám í litlum og sérhæfðum skólum, sem og starfs- og iðngreinar. Einkum verður leitast við að afmarka og gera grein fyrir þeim þáttum í innleiðingarferli sem stuðla að árangursríkri notkun upplýsingatækni, einstaklingsmiðuðu námsumhverfi, og verkefnamiðuðu námi.

Samstarfsaðilar verkefnisins koma frá sex Evrópulöndum:

  • Keilir ? Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs (Ísland)
  • Mentor (Ísland)
  • Háskóli Íslands (Ísland)
  • Sofatutor (Þýskaland)
  • University of London ? Institute of Education (Bretland)
  • Sandvika High School (Noregur)
  • Miska (Slóvenía)
  • Consorzio Lavoro e Ambiente (Ítalía)
  • Giunti Scuola (Ítalía)

Meðal afurða verkefnisins eru handbækur fyrir kennara sem vilja innleiða vendinám, verða ráðstefnur og vinnubúðir fyrir kennara í samstarfslöndunum, samantekt á fyrirmyndarverkefnum og bestu starfsvenjum í vendinámi, uppsetning á opnum gagnagrunni þar sem aðilar geta deilt efni sem tengist innleiðingu og utanumhaldi vendináms.

Í tengslum við verkefnið verður haldin opin ráðstefna og vinnubúðir um innleiðingu og notkun vendináms 14. ? 15. apríl 2015 og fer hún fram á Ásbrú í Reykjanesbæ. Meðal leiðbeinenda verða Jonathan Bergmann og Aaron Sams, höfundar ?Flip Your Classroom?. Kennarar og skólastjórnendur á öllum skólastigum eru sérstaklega hvattir til að mæta. Nánari upplýsingar og skráning verður birt á heimasíðu Keilis.