Fara í efni

Keilir tekur þátt í endurmenntun evrópskra kennara

Keilir er þátttakandi í verkefninu INTEMIS sem er styrkt af Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins. Verkefnið, sem hófst í ágúst 2016 og lýkur í ágúst 2018, gengur út á að fræða kennara í starfsmenntaskólum um nýjungar í kennsluháttum, þar á meðal vendinámi til að draga úr brottfalli, auka gæði í kennslu, og innleiða nýjar aðferðir sem taka mið af upplýsingatækni og tölvum í skólastarfi.
 
Umsóknaraðili er IIS Leonardo da Vinci starfsmenntaskólinn á Sikiley á Ítalíu og koma aðrir samstarfsaðilar frá Danmörku, Ítalíu, Spáni og Grikklandi, auk Keilis á Íslandi. Markmið verkefnisins er að þjálfa kennara í vendinámi og auka færni bæði kennara og nemenda í tölvulæsi.
 
Hlutverk Keilis í verkefninu verður að stýra tveimur fimm daga vinnustofum fyrir kennara á Spáni, Ítalíu og Grikklandi í innleiðingu og notkun vendináms við kennslu. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu verkefnisins.
 
Samstarfsaðilar INTEMIS verkefnisins eru:
 
  • IIS Leonardo da Vinci starfsmenntaskólinn á Ítalíu
  • Essenia UETP, Ítalíu
  • Inercia Digital, Spáni
  • Acition Synergy, Grikklandi
  • Háskólinn í Porto, Portúgal
  • Keilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs á Íslandi