17.02.2014
Hressir og áhugasamir nemendur Hugvísindadeildar fóru í þýska bókasafnið sem er staðsett í Bókasafni Hafnarfjarðar. En þeir hafa veg og vanda að bjóða upp á fjölbreytt úrval bóka, dagblaða, tímarita og kvikmynda á þýskri tungu. Einnig standa þeir fyrir menningnarlegum viðburðum er tengjast hinu hljómfagra tungumáli. Vel heppnuð heimsókn og kærkomin tilbreyting fyrir kennara og nemendur.