Fara í efni

Náttúruvá á Reykjanesi

Ari Trausti Guðmundsson
Ari Trausti Guðmundsson
Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur, verður með fyrirlestur um jarðfræði og náttúruvá á Reykjanesi miðvikudaginn 6. febrúar næstkomandi.

Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur, verður með fyrirlestur um jarðfræði og náttúruvá á Reykjanesskaga miðvikudaginn 6. febrúar næstkomandi. Fyrirlesturinn er í boði Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar og Reykjanes GeoPark, og fer fram kl 12 - 13 í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú.

Í fyrirlestrinum er farið yfir rammann að eldvirkni og jarðskorpuhreyfingum á Íslandi og samhengið við virknina á Reykjanesskaga, einnig jarðhitann. Gerð er grein fyrir eldstöðvakerfunum fjórum og jarðsögu þeirra. Farið verður yfir helstu form þeirrar hættu sem stafar af ýmsum atburðum í náttúrunni, af völdum veðurs, hækkun sjávarborð, jarðskjálfta og eldgosa, og loks minnst á jarðminja- og eldfjallagarða. Fyrirspurnum er svarað eftir því sem tíminn leyfir.

Ari Trausti Guðmundsson nam við Háskóla Íslands og í Osló, með áherslu á jarðeðlisfræði og jarðfræði og vann m.a. við kennslu, leiðsögn og ferðaþjónustu til 1987. Eftir það hefur hann verið sjálfstætt starfandi og t.d. sinnt ýmis konar faglegri ráðgjöf, fyrirlestrum, ferðaþjónustu, kynningu á vísindum, viðamiklum ritstörfum og dagskrárgerð fyrir sjónvarp og útvarp, nú síðast haft umsjón með vinsælum þáttum um vísindi og nýsköpun hjá Sjónvarpinu. Meðal annars hefur hann leitt íslenska ferðahópa til Mongólíu, Nýja-Sjálands og Ekvador og stundað fjallamennsku, útivist og ferðalög í rúma fjóra áratugi, heima og heiman.

Ari Trausti hefur stundað margvísleg ritstörf, s.s. þýðingar, skrif v. landkynningar, stjórnmálaskrif og skáldskap. Eftir hann liggur hátt á þriðja tug bóka um náttúruna, þar á meðal eldvirkni, jökla, umhverfismál, ferða- og fjallamennsku, ásamt fimm ljóðabókum, stuttsögusafni og fjórum skáldsögum, sú nýjasta kom út árið 2011. Meðal verkefna hans eru sýningar og söfn, t.d. Orkuverið Jörð, Vísindasýningarnar í París 2004 og Londin 2005 og upplýsingamiðstöðin um Eyjafjallajökulsgosið á Þorvaldseyri. Hann var einn af frambjóðendunum til embættis forseta Íslands 2012.

Erindið er öllum opið og fólki er velkomið að taka hádegisverðinn með sér.