Fara í efni

Kynning á Keili á Akureyri

Keilir verður með kynningu á námsframboði skólans á Háskóladeginum í Verkmenntaskólanum á Akureyri, fimmtudaginn 3. mars frá 11 til 13:30. Keilir verður með kynningu á námsframboði skólans á Háskóladeginum í Verkmenntaskólanum á Akureyri, fimmtudaginn 3. mars frá 11 til 13:30.


Kynnt verður námsframboð á haustönn 2011, meðal annars orkutæknifræði, mekatróník, ÍAK einkaþjálfun, ÍAK íþróttaþjálfun, verkefna- og viðburðastjórnun, flugnám, flugþjónustunám og flugumferðarstjórn. Fyrir áhugasama verður auk þess flugvél úr Flugakademíunni til sýnis á flugvellinum fram eftir degi.

Við hvetjum áhugasama Norðlendinga að mæta og kynna sér námsframboð Keilis.