Fara í efni

Kynning á tæknifræðinámi Keilis á Degi verkfræðinnar

Háskóli Íslands og Keilir kynna tæknifræðinám á Degi verkfræðinnar föstudaginn 7. apríl á Hilton Reykjavík Nordica. Dagskráin hefst kl. 13 og verða fyrirlestrar og kynningar í þremur opnum fundasölum.

Markmiðið með Degi verkfræðinnar er að kynna verkfræðina, spennandi verkefni og störf á því sviði og ekki síst efla tengsl og samheldni meðal íslenskra verkfræðinga og tæknifræðinga.

Dagur verkfræðinnar hefur vakið athygli og verið vel sóttur af félagsmönnum VFÍ og öðru áhugafólki. Á fjórða hundrað manns mættu á Dag verkfræðinnar í fyrra.

Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu á viðburðinn má nálgast hér.