08.04.2018
Keilir býður upp á röð kynningarfunda á landsbyggðinni í apríl.
Keilir hefur útskrifað rúmlega þrjú þúsund nemendur síðan stofnun skólans árið 2007. Skólinn er lítill og sérhæfður, með áherslu á nánd við nemendur og persónulega þjónustu. Hjá Keili er mikið lagt upp úr nútímalegum og fjölbreyttum kennsluháttum, bæði í fjarnámi og staðnámi. Einnig að nemendum sé skapað traust og gott námsumhverfi.
Námskynningarnar fara fram á eftirfarandi stöðun:
- Miðvikudaginn 4. apríl, kl. 12 - 13 í VISKU - Fræðslu- og símenntunarmiðstöðinni í Vestmannaeyjum
- Mánudaginn 9. apríl, kl. 17 - 18 í Símenntunarmiðstöð Vesturlands á Akranesi
- Mánudaginn 9. apríl, kl. 20 - 21 í Símenntunarmiðstöð Vesturlands í Borgarnesi
- Þriðjudaginn 10. apríl, kl. 12 - 13 í Farskólanum á Sauðárkróki
- Miðvikudaginn 11. apríl, kl. 17 - 18 í Hótel Kea á Akureyri
- Fimmtudaginn 12. apríl, kl. 17 - 18 í Austurbrú á Egilsstöðum
- Föstudaginn 13. apríl, kl. 12 - 13 í Austurbrú á Reyðarfirði
Áhersla verður á fjarnám Háskólabrúar bæði með og án vinnu en auk þess verður hægt að fræðast um annað námsframboð skólans svo sem:
- Háskólabrú í stað- og fjarnámi bæði með og án vinnu
- Atvinnuflugmannsnám
- Flugvirkjanám (fimm annir)
- Einka- og styrktarþjálfaranám (fjarnám og staðlotur)
- Leiðsögunám í ævintýraferðamennsku (átta mánaða háskólanám)
- Fótaaðgerðafræði (fjarnám og staðlotur)
- Tæknifræðinám Háskóla Íslands til BS prófs (hægt að taka hluta í fjarnámi)
Kynntu þér fjölbreytt nám í framsæknum skóla. Veitingar í boði. Allir velkomnir.