Fara í efni

Litið inn í tíma í Háskólabrú

Vinningsliðið
Vinningsliðið
Nemendur á Viðskipta- og hagfræðibraut Háskólabrúar eru þessa dagana að læra þjóðhagfræði í Inngang að viðskiptafræði.

Nemendur á Viðskipta- og hagfræðibraut Háskólabrúar eru þessa dagana að læra þjóðhagfræði í Inngang að viðskiptafræði.

Á dögunum fengu nemendur athyglisvert verkefni í tímanum, en það var að byggja eins háan frístandandi turn og þau gætu úr sogrörum og kennaratyggjói. Vakti uppátækið mikla kátínu meðal nemenda og upphófst mikil keppni um byggingu hæsta turnsins. Í lok tímanns bar kennarinn fram spurningarlista þar sem nemendur veltu fyrir sér hlutverk hvers og eins í verkefninu, hver hefði tekið leiðtogahlutverk, hverjir voru gerendur og fylgjendur, hlustendur, og svo framvegis.

Fleiri myndir má sjá hér