Fara í efni

Mikil eftirspurn eftir tæknifræðingum

Í nýlegu riti Samtaka atvinnulífsins kemur fram að fjölga þarf útskrifuðu fólki úr verkfræði, tækni- og raunvísindanámi og að mikil eftirspurn sé eftir starfsfólki sem hefur aflað sér raungreina- og tæknimenntunar. 

Í nýlegu riti Samtaka atvinnulífsins "Uppfærum Ísland" kemur fram að fjölga þarf útskrifuðu fólki úr verkfræði, tækni- og raunvísindanámi á Íslandi. Mikil tækifæri felast í þeim hluta atvinnulífsins sem er kallaður hátæknigeirinn, en nú þegar er æpandi eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki sem hefur aflað sér raungreina- og tæknimenntunar á háskólastigi. 

Í ritinu er að finna beinar tillögur að uppfærslu Íslands sem miða að því að styrkja menntakerfið og efla atvinnulífið með aukinni samvinnu skóla og fyrirtækja. Ritið byggir á umræðu um 100 stjórnenda úr íslensku atvinnulífi en fyrirtækin og samtök í atvinnulífinu kalla eftir sameiginlegri stefnumótun með stjórnvöldum um framtíð og þróun menntakerfisins.

Það er kostnaðarsamt fyrir fyrirtæki að flytja inn fólk sem getur aðlagast menningu og efnahagslegum skilyrðum hér á landi. Fyrirtækin munu líta á heiminn sem markaðssvæði fyrir afurðir sínar og vinnuafl, nýta tæknina og taka upp víðtækt samstarf án tillits til staðsetningar. Fyrirtækin verða að byggjast upp með viðvarandi þekkingu þó að fólk komi og fari og við það verður menntakerfið að ráða.  Það getur því verið kostur að bjóða erlendum námsmönnum aðgang að háskólanámi í verkfræði og tæknigreinum og tryggja þeim um leið aðgang að íslenskum vinnumarkaði ef ekki tekst að breyta skólakerfinu þannig að það uppfylli þarfir atvinnulífsins.
 
Keilir býður upp á stutt, hagnýtt og nýstárlegt háskólanám í tæknifræði (BS gráða). Námið er sniðið að þörfum atvinnulífsins, byggir á raunverulegum verkefnum og verkviti nemenda. Opið er fyrir umsóknir í orku- og umhverfistæknifræði og mekatróník hátæknifræði. Nánari upplýsingar á www.kit.is