Fara í efni

Mikill ávinningur af átaksverkefninu ?Nám er vinnandi vegur?

Frá undirritun samningsins 6. september 2011
Frá undirritun samningsins 6. september 2011
Keilir var í hópi þeirra skóla sem á dögunum undirrituðu samkomulag við stjórnvöld um að taka á móti atvinnuleitendum í nám haustið 2011. Alls hófu 53 nemendur af rúmlega 300 nám í Háskólabrú Keilis í haust að tilstuðlan átaksverkefnisins. Keilir var í hópi þeirra skóla sem á dögunum undirrituðu samkomulag við stjórnvöld um að taka á móti atvinnuleitendum í nám haustið 2011. Alls hófu 53 nemendur af rúmlega 300 nám í Háskólabrú Keilis í haust að tilstuðlan átaksverkefnisins.

Skrifað var undir samkomulagið á Háskólatorgi Háskóla Íslands en með því er yfir þúsund atvinnuleitendum gert kleift að stunda nám í skólum landsins. Viðstödd voru Svandís Svavarsdóttr, starfandi mennta- og menningarmálaráðherra, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra, fulltrúar háskólanna og sömuleiðis fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins. 

Þessir aðilar hafa unnið saman síðan í vor að að átaksverkefninu „Nám er vinnandi vegur“, sem hefur það að markmiði að koma þeim sem lengi hafa leitað vinnu í nám. Aðgerðir átaksins voru tvíþættar. Annars vegar að tryggja öllum yngri en 25 ára sem eftir leita og uppfylla inntökuskilyrði nám við hæfi í framhaldsskólum í haust. Hins vegar að skapa ný námstækifæri fyrir allt að eitt þúsund atvinnuleitendur í haust og næstu tvö ár á eftir í framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og framhaldsfræðslu. 

Meðal þess sem felst í átakinu er að þeir atvinnuleitendur sem hefja nám í haust halda bótum sínum til áramóta. Þá mun þeim sem stunda lánshæft nám standa til boða framfærslulán frá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Öðrum verður tryggð framfærsla með sérstöku úrræði sem verið er að útfæra.

Yfir 300 nemendur stunda nám á Háskólabrú og rúmlega helmingur þeirra af Suðurnesjunum

Haustið 2011 eru 147 nemendur í  staðnámi í Háskólabrú, 31 nemandi í staðnámi í Háskólabrú á Akureyri og 134 nemendur í fjarnámi. Á Háskólabrú Keilis stunda því nú 312 nemendur nám, sem gerir skólann að meðal stórum framhaldsskóla á landsvísu.

Alls hófu 113 nemendur nám við frumgreinadeildir á landsvísu að tilstuðlan átaksverkefnisins „Nám er vinnandi vegur“, en af þeim völdu flestir (eða næstum helmingur) að stunda nám við Háskólabrú Keilis eða í allt 53 nemendur. Af þeim komu 58% frá Suðurnesjum, en af heildarfjölda nemenda í Háskólabrú eru um 55% af Suðurnesjum eða rúmlega 170 nemendur.