Fara í efni

Mötuneyti Keilis lengir opnunartímann

Í Salnum í aðalbyggingu Keilis rekur fyrirtækið Dagar matsölu sem er opin frá kl. 8:15 alla virka daga.

Á morgnana er hægt meðal annars hægt að kaupa hafragraut, rúnstykki og kaffi. Í hádeginu er boðið upp á heitan mat, súpu, salatbar, kaffi, samlokur og fleira. Áhersla er lögð á hollan og góðan hádegismat á viðráðanlegu verði. Hægt er að skoða matseðil hér (sami matseðill og ISAVIA). Að auki er hægt að versla hamborgara og franskar.

Í matsalnum er einnig örbylgjuofn og samlokugrill sem nemendur geta nýtt fyrir nesti að heiman. Kaffibolla og önnur áhöld sem farið er með úr matsalnum þarf að skila þangað aftur. Vinsamlegast skiljið kaffibolla ekki eftir á göngum skólans og athugið að engar kaffikönnur eru leyfðar í skólastofum.