03.10.2014
Fimmtudaginn 9. október verður kynning frá VIA University College í Danmörku. Jóhann Elí mun heimsækja Keili og kynna námsframboð skólans ásamt því að svara ýmsum praktískum spurningum varðandi nám í Danmörku.
Kynningin fer fram í stofu B4 kl. 14:00 - 14:40 og er öllum opin.