Fara í efni

Námskynning í Reykjanesbæ

Keilir verður á námskynningunni "Nám er vinnandi vegur" í Stapanum í Reykjanesbæ miðvikudaginn 18. maí frá kl. 14 - 18. Hægt verður að kynnast námsframboði Keilis og þeim sérhæfðu úrræðum sem við bjóðum uppá. Nánari upplýsingar má nálgast hér.

Keilir verður á námskynningunni "Nám er vinnandi vegur" í Stapanum í Reykjanesbæ miðvikudaginn 18. maí frá kl. 14 - 18. Hægt verður að kynnast námsframboði Keilis og þeim sérhæfðu úrræðum sem við bjóðum uppá. Nánari upplýsingar má nálgast hér.



Nám er vinnandi vegur byggir á tillögum frá samráðshóp ráðuneyta, allra þingflokka, aðila vinnumarkaðarins og hreyfinga námsmanna sem forsætisráðherra skipaði. Fjármögnun átaksins var tryggð með samráði ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins í tengslum við gerð kjarasamninga en í heild verða framlög til menntamála með átakinu aukin um sjö milljarða króna næstu þrjú ár. 

Atvinnuleitendum verður gefið tækifæri til að mennta sig, sérstakur þróunarsjóður stofnaður til að efla starfstengt nám og samstarf skóla og fyrirtækja um starfstengt nám verður aukið. Lög um LÍN og framfærslukerfi námsmanna verða endurskoðuð, skil framhaldsskóla og fullorðinsfræðslu verða gerð sveigjanlegri, námsráðgjöf efld og vinnustaðanámssjóður styrktur. 

Nám er vinnandi vegur byggir á því markmiði Íslands 2020 að hlutfall Íslendinga á aldrinum 
20-66 ára sem ekki hafa lokið námi í framhaldsskóla fari úr 30% niður í 10% fyrir árið 2020.
 



Sköpun
 
Skapandi greinar verða sífellt mikilvægari í atvinnulífinu og nú eru ársverk í þeim geira nærri 10.000. Ný hugverk eru verðmæti, störfin skemmtileg og þörfin fyrir skapandi starfskrafta mun halda áfram að aukast. Námsráðgjafar og skólar munu kynna námsleiðir og nýja möguleika á þessu sviði. 

Tækni 
Á næstu árum er áætlað að fjöldi nýrra starfa skapist ár hvert í verk- og tæknigeiranum. Aukin þörf fyrir starfsfólk með menntun og hæfni í verklegum greinum skapar spennandi tækifæri fyrir alla sem vilja bæta við grunnmenntun sína og bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Fjölmörg námstækifæri á þessu sviði verða kynnt á námsstefnunni. 

Umönnun 
Með hækkandi meðalaldri og sífellt betri aðbúnaði fjölgar umönnunarstörfum ár frá ári. Eftirspurn eftir menntuðu starfsfólki er mikil og líklegt er að hún fari vaxandi næstu ár. Störf í þessum geira eru fjölbreytt og tækifærin mörg. Námsmöguleikar á framhalds- og háskólastigi verða kynntir auk ýmissa símenntunartækifæra. 



1000 ný tækifæri fyrir atvinnuleitendur 
Með samstarfi skóla, stjórnvalda og atvinnulífs opnast nýir möguleikar fyrir atvinnuleitendur. Þeim sem uppfylla skilyrði gefst nú kostur á að stunda nám á haustönn án þess að greiða skólagjöld. Markmiðið er að veita 1000 umsækjendum aðgang að framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og framhaldsfræðslu – með óskertum atvinnuleysisbótum í eina önn. 



 
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Keili í síma 578 4000 eða á netfangið: keilir@keilir.net. Þú getur einnig bókað fund með námsráðgjafa Keilis fyrir námskynninguna á: sigrun@keilir.net