Fara í efni

Niðurstaða á orsök mæliskekkju í Helguvík

Líkt og kunnugt er kom upp óeðlilegt frávik í efnamælingum Orkurannsókna ehf í Helguvík sem gáfu vísbendingar um að mæliskekkja hefði átt sér stað við greiningu á málmum í ryksýnum, þar á meðal arsens.
 
Í kjölfarið fór fyrirtækið yfir þau gögn sem voru til staðar og verkferla við sýnasöfnun, auk þess sem ALS Global í Svíþjóð, sem annast úrvinnslu og greiningar á þeim sýnum sem Orkurannsóknir safna, fóru yfir sína ferla. Við skoðun hjá ALS hefur komið í ljós að mannleg mistök hjá þeim leiddu til þess að sýnin sem send voru til Svíþjóðar voru greind með fimmfalt hærra magn málma en raun var.
 
ALS hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir harma þessi mistök og árétta að þeir muni fara yfir sína verkferla til að fyrirbyggja slík mistök í framtíðinni. 
 
Orkurannsóknir ítreka að fyrirtækið fylgir ítrustu gæðaferlum og viðheldur viðurkenndum vinnubrögðum við umhverfis- og efnamælingar.
 
Egill Þórir Einarsson
Yfirmaður rannsóknarstofu Orkurannsókna ehf