11.01.2012
Nýverið kom fram að Vogaskóli í Reykjavík hyggst hafa allar kennslubækur fyrir heilan árgang nemenda geymdan í Kindle, en Flugakademía
Keilis hefur einmitt nýtt rafrænar kennslubækur í iPad spjaldtölvum síðan haustið 2011.
Nýverið kom fram að Vogaskóli í Reykjavík hyggst hafa allar kennslubækur fyrir heilan árgang nemenda geymdan í Kindle, en Flugakademía
Keilis hefur einmitt nýtt rafrænar kennslubækur í iPad spjaldtölvum síðan haustið 2011.
Kostir þess að nýta slíkan búnað fyrir rafrænar kennslubækur er margvíslegur, til að mynda léttir þetta fyrirkomulag
þungan burð skólabóka. Þá býður Kindle upp á að nemendur geta stækkað letur textans að þörfum, nokkuð sem ekki
verður gert með hefðbundnum kennslubókum. Fleiri aðilar hafa séð notkunarmöguleika spjaldtölva, en Margrét Pála Ólafsdóttir
hefur tilkynnt að iPad spjaldtölvur verði í framtíðinni nýttar í grunnskólum Hjallastefnunnar.
Síðastliðið haust tóku kennarar í Flugakademíu Keilis af skarið og afhentu nemendum í bóklegu námi til atvinnuflugs iPad á
fyrsta skóladegi með kennslugögnum innanborðs. Verður þessi leið þróuð í vetur og býr Keilir sig undir að stíga alvöru
skref inn á þessar brautir.
Við sjáum fyrir okkur að innan skamms verði allir nemendur Keilis með iPad eða sambærilegar spjaldtölvur. Við teljum að með því
móti megi gera kennslu til muna skilvirkari og mæta þörfum hvers og eins mun betur en í hefðbundnu formi. Spjaldtölvur opna möguleika fyrir markvissa
notkun myndbanda, lifandi fyrirlestra, gagnvirks sambands nemanda og kennara, o.s.frv. Við teljum að skóli framtíðar hljóti að nýta sér þessa
tækni til hagsbóta fyrir nemendur.
Fróðlegt verður að fylgjast með nýtingu rafrænna kennslubóka í framtíðinni og vill Keilir vera leiðandi aðili í
þeirri þróun.