Fara í efni

Nýnemadagur tæknifræðinemenda

Nýnemadagur tæknifræðinemenda Háskóla Íslands á vettvangi Keilis fer fram mánudaginn 15. ágúst. Þá verður farið yfir skipulag skólans og námsins, ásamt hópefli, auk kynninga á upplýsingatorgi, meðferð upplýsinga, námsráðgjöf, tölvumálum og kennslukerfinu Moodle. Mikilvægt er að allir mæti með tölvur sínar með sér þar sem tölvudeildin mun fara yfir helstu atriði varðandi notkun tölva.

Dagskrá nýnemadags tæknifræðinemenda 

  • 09:30 – 10:30, Móttaka og kynning á aðstöðu
  • 10:30 – 12:00, Tölvumál og lyklar. Kynning á Moodle
  • 12:00 – 12:30, Hádegisverður
  • 12:30 – 13:00, Kynning á nemendafélagi
  • 13:00 – 15:00, Hópefli
  • 15:00 – 16:00, Skoðunarferð í HAKKIT

Hægt er að nálgast reglur og handbók nemenda á eftirfarandi slóðum:

Verkefni  1

Nemendur taka Verkefni 1 (KIT102G) í þriggja vikna lotunni sem er frá 15. ágúst til 2. september, verkefnið gildir 4 ECTS einingar. Matsform fyrir KIT102G er þátttaka í námsskeiði, nemendur skulu taka þátt í öllum verkefnum til að fá staðið. Verkefni 1 miðar að því að auka færni í hópvinnu og kynningum. Nemendur þreyta margvísleg verkefni og setja upp hugbúnað fyrir næstu lotu.

Aðrar upplýsingar 

Stöðumat í stærðfræði fyrir nýnema verður haldið í annarri viku lotunnar. Matið tekur tvo tíma og er prófað uppúr framhaldsskólastærðfræði, áföngum 103 til 503. Athuga skal að stöðumatið er einungis leiðandi, það er notað til að meta stöðu nýnema við upphaf námsins.

Tæknifræðibrú II

Að loknu mati stendur til boða að taka Tæknifræðibrú II fyrir þá sem telja sig þurfa aukna upprifjun í framhaldsskólastærðfræðinni. Tæknifræðibrú II gildir 5 ECTS einingar sem þó eru ekki til gráðu. Kúrsinn er haldinn í annari lotu.