Fara í efni

Nýr fjármálastjóri Keilis

Harpa Björg Sævarsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Keilis. Harpa er með MAcc gráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands og með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Hún starfaði síðast sem skrifstofustjóri hjá HS Orku frá árinu 2007.

Harpa tekur við starfinu af Halldóri Zoëga sem hefur látið af störfum hjá Keili eftir rúmlega þriggja ára veru hjá skólanum. Starfsfólk Keilis þakkar Halldóri fyrir vel unnin störf og óskar honum heilla í framtíðinni.