Fara í efni

Nýr leitarvefur

Leitir.is er nýr leitarverfur sem leitar samtímis í Gegni og erlendum áskriftum að stafrænu vísindaefni.

Leitir.is er nýr leitarverfur sem leitar samtímis í Gegni og erlendum áskriftum að stafrænu vísindaefni.

 

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningamálaráðherra opnaði nýjan vefinn á afmælisráðstefnu Landskerfis bókasafna í 11. nóvember síðastliðinn. Um er að ræða leitarvef sem leitar samtímis í Gegni sem er samskrá velflestra bókasafna í landinu, tengdu stafrænu íslensku efni ásamt erlendum áskriftum að stafrænu vísindaefni í Landsaðgangi. 

 
Nafn vefgáttarinnar er sótt til þess viðburðar sem á sér stað á haustin í sveitum landsins er bændur halda til fjalla og smala saman búpeningi sínum. Þeir fara í leitir. Á vefnum leitir.is fara menn einnig í leitir og smala saman niðurstöðum. Það er margt sem þar kemur í leitirnar. Förum öll í leitir!
 
Hægt er að nýta leitarvefinn beint af vefsíðu bókasafns Keilis.