Fara í efni

Nýr rekstraraðili veitingasölu Keilis

Fulltrúar Menu Veitinga, Keilis og Skólamatar
Fulltrúar Menu Veitinga, Keilis og Skólamatar

Frá og með áramótum mun Menu-Veitingar annast veitingasölu í mataðstöðu nemenda og starfsfólks Keilis, en Skólamatur hefur haldið utan um þessa þjónustu undanfarin ár. Veitingasalan er staðsett í aðalbyggingu Keilis að Grænásbraut 910 á Ásbrú og verður hægt fá heitan mat í hádeginu á virkum dögum. Menu-Veitingar munu leggja áherslu á fjölbreytt og gott úrval rétta í hádeginu og er veitingasalan öllum opin.

Keilir vill nota tækifærið og þakka Skólamat fyrir samstarfið og hlakkar til að snæða hjá Menu-Veitingum í framtíðinni.