11.03.2016
Keilir óskar eftir starfsmanni í fullt starf á nýtt Upplýsingatorg skólans þar sem nemendur og starfsfólk getur leitað aðstoðar vegna upplýsingatækni og gagnaöflunar.
Helstu verkefni:
- Aðstoð við Microsoft Office, Office 365, kennslukerfið Moodle og fleira
- Aðstoða kennara við upptökur
- Tækniaðstoð í stofum
- Leiðbeina við gagnaöflun
Við leitum að áhugasömum og þjónustulunduðum aðila (sakar ekki að vera skemmtilegur) með menntun sem nýtist í starfi. Keilir starfar eftir jafnréttis- og fjölskyldustefnu. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Umsóknir sendist á netfangið starfsumsokn@keilir.net fyrir 1. apríl 2016.