Fara í efni

Opnunartími yfir jól og áramót

Lokað verður hjá Keili frá og með 23. desember, en við opnum aftur á skrifstofunni mánudaginn 2. janúar kl. 10.

Lokað verður hjá Keili frá og með 23. desember, en við opnum aftur á skrifstofunni mánudaginn 2. janúar kl. 10.

Þetta ár hefur liðið ótrúlega hratt og nú styttist í lok þess.

Við höldum okkar striki og kl. 16 þann 22. desember – á stysta degi ársins – brestur á jólaleyfi hjá Keili. Við ætlum sem sagt öll – nema þeir sem ætla að vera í kennsluflugi – að hefja jólaleyfið okkar eftir þann dag. Njóta þess að vera með fjölskyldum og vinum og mæta svo hress og kraftmikil á nýju ári.

Hér verður sem sagt allt lokað frá og með 23. desember en við opnum aftur á skrifstofunni mánudaginn 2. janúar kl. 10.

Um leið og ég þakka öllum fyrir samstarfið á árinu þá vona ég að öll megi eiga gleðileg hvíldarjól og fagni nýju ári með brosi á vör.

Hjálmar Árnason,
Framkvæmdastjóri