10.02.2014
Nemendur og starfsfólk Keilis komu saman á Sal skólans í hádeginu í dag. Tilefnið var ærið: Arinbjörn Kristinsson og Thomas Edward, nemendur á öðru ári í tæknifræði Keilis, mynduðu sigurliðið í hinni árlegu hönnunarkeppni véla- og verkfræðinema ásamt Fanneyju Magnúsdóttur. Lið Keilis, bar nafnið Mekatrónik eftir áfanga í náminu, og var eina liðið sem náði að ljúka verki sínu. Arinbirni og Thomasi var vel fagnað á Sal af starfsfólki og nemendum. Fengu þeir blómvönd og afnám innritunargjalda næsta árs frá Keili í viðurkenningarskyni til viðbótar við þau 400.000 sem hið eignlega verðlaunafé var
Þó Keilir hafi aðeins starfað í sex ár sýnir þessi glæsilegi árangur að þar fer fram gott starf.