Fara í efni

Skarphéðinn Þór Gunnarsson kynnir lokaverkefni um prentplötugerð

Skarphéðinn Þór Gunnarsson kynnir lokaverkefni sitt í tæknifræði um prentplötugerð með CNC stýribúnaði og útfjólubláum geisla, fimmtudaginn 26. maí kl. 13:00 í aðalbyggingu Keilis.

Skarphéðinn Þór Gunnarsson er fæddur í Reykjavík árið 1971. Í fjölmörg ár starfaði hann sem járnsmiður í smiðju í Reykjavík sem fékkst að mestu leyti við handriða- og stigasmíði fyrir nýbyggingar. Starfið fól í sér mælingar, hönnun/teikningu, smíði og uppsetningu.

Árið 2011 lá leiðin aftur í nám og 2012 lauk hann undirbúningsnámi fyrir frumgreinadeildir háskólanna frá Menntastoðum. Ári seinna útskrifaðist hann frá raungreinadeild Háskólabrúar Keilis. Haustið 2013 hóf hann svo nám í mekatrónískri tæknifræði við tæknifræðideild Keilis þaðan sem hann mun útskrifast nú í sumar.

Varnir lokaverkefna

Varnir lokaverkefna BS nemenda í tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis fara fram 25. - 27. maí næstkomandi. Varnirnar fara fram í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ og eru öllum opnar (nema annað sé tekið fram).

Miðvikudagur 25. maí

  • kl. 10:40: Jón Bjarki Stefánssonpage - Samanburður á Vindtúrbínum
  • kl. 14:30: Jón Ingi Björnsson - Frumgerð utanáliggjandi úthljóðsflæðiskynjara   

Fimmtudagur 26. maí

  • kl. 09:15: Adam Crompton - Fesability of EGS in Iceland
  • kl. 10:40: Gunnar Páll Halldórsson- Eftirlitskerfi
  • kl. 13:00: Skarphéðinn Þór Gunnarsson - Laser Rásaplötuvél
  • kl. 14:30: Jón Þór Guðbjörnsson - Miðlægur orkustýribúnaður með gagnaflutningi um raflagnir

Föstudagur 27. maí

  • kl. 09:15: Atli Már Jónsson - Nýting fiskibeina
  • kl. 10:40: Ellert Þór Arason - Snertilaus greiðslustöð fyrir sjáfsala
  • kl. 13:00: Heimir Sigurgeirsson - Package Drop
  • kl. 14:30: Helgi Valur Gunnarsson - Skelfisk pökkunarvél
  • kl. 16:00: Sara Lind Einarsdóttir - Endurnýting á Afgangsvarma