Keilir hefur sett saman röð námskeiða í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Námskeiðin eru liður í aðgerðum stjórnvalda sem miða að uppbyggingu á Suðurnesjunum í kjölfar falls WOW Air í vor. Á meðal námskeiða eru útvist, jöklaferðir, tölvuleikjagerð og flugtengd störf.
Námskeiðin fara fram í júlí og ágúst. Þau eru án endurgjalds og henta bæði ungu fólki sem og fullorðnum einstaklingum.
- Grunnnámskeið í fjallamennsku og jöklaferðum (18 ára og eldri): 23. júlí - 1. ágúst (FULLBÓKAÐ)
- Útivist og umhverfi - Námskeið fyrir ungt fólk (13 - 15 ára): 6. - 21. ágúst
- Tölvuleikjagerð - Námskeið fyrir ungt fólk (13 - 15 ára): 12. - 16. ágúst (FULLBÓKAÐ)
- Flugtengd störf - Námskeið fyrir ungt fólk (13 - 16 ára): 29. - 31. júlí (FULLBÓKAÐ)
- Grunnnámskeið um einka- og atvinnuflugnám fyrir fullorðna: 22. - 26. júlí
Í framhaldi af fundi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra með íbúum Suðurnesja í apríl um atvinnu- og fræðslumál á svæðinu var stofnaður starfshópur um málið innan mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Hlutverk hans var að móta aðgerðaáætlun er byggði á sýn heimamanna og stjórnvalda og vinna henni brautargengis ásamt því að vakta, greina og miðla upplýsingum um stöðu og þróun mála, með sérstakri áherslu á greiningu á aðstæðum þeirra hópa sem verst stæðu.
Á heimasíðunni má nálgast upplýsingar um þau námskeið sem Keilir hefur sett saman.