Fara í efni

Tækifærin eru þarna, grípum þau

Þriðjudaginn 16. mars nk. kl. 17:00 býður Virkjun á Ásbrú uppá skemmtilegan og fræðandi fyrirlestur með Magnúsi Scheving, höfundi Latabæjar. Þriðjudaginn 16. mars nk. kl. 17:00 býður Virkjun á Ásbrú uppá skemmtilegan og fræðandi fyrirlestur með Magnúsi Scheving, höfundi Latabæjar.

 

Þriðjudaginn 16. mars nk. kl. 17:00 býður Virkjun, Flugvallabraut 740 Ásbrú, uppá skemmtilegan og fræðandi fyrirlestur. Magnús Scheving, höfundur Latabæjar, flytur létt og skemmtilegt erindi um hugsunarhátt frumkvöðla, mikilvægi nýsköpunar og tækifærin sem eru allt í kringum okkur. Áheyrendum gefst kostur á að spyrja Magnús um hvað eina sem þeim dettur í hug; allt frá Latabæ til Hvíta hússins í Washington en Magnús hóf m.a. nýlega samstarf við forsetafrú Bandaríkjanna; Michelle Obama við að hrinda af stað heilsuátaki á meðal barna í USA.