Fara í efni

Tækni- og vísindasmiðja fyrir börn og unglinga í sumar

Sumarið 2014 býður Keilir í annað sinn upp á tækni- og vísindasmiðju fyrir börn og unglinga á aldrinum 10 til 13 ára (2000 - 2004). Námskeiðin verða haldin í húsnæði Keilis og munu þátttakendur njóta góðs af þeirri aðstöðu sem tæknifræðideild Keilis hefur uppá að bjóða. 

Markmiðið er að auka þekkingu og vitund unglinga á tækni og vísindum. Mikið verður lagt uppúr því að útskýra hvernig tækni og vísindi hefur áhrif á allt okkar daglega líf. Farið verður í vettvangsferð um Reykjanesið þar sem þátttakendur fá skemmtilega og lifandi fræðslu. Einnig verða framkvæmdar spennandi tilraunir og tekist á við þroskandi og skemmtileg verkefni undir leiðsögn leiðbeinenda.

Í lok námskeiðsins fá allir krakkarnir viðurkenningu fyrir að hafa lokið Tækni- og vísindasmiðju Keilis. Tækni- og vísindasmiðja Keilis er í samstarfi við HS orku, Þekkingarsetur Suðurnesja, GeoCamp Iceland og Fisktækniskóla Íslands.

Hvert námskeið ein vika, frá mánudegi til föstudags frá 9:00 ? 15:00 og hefst fyrsta námskeiðið 23. júní. Námskeiðin eru háð lágmarksþátttöku.